Æfingaplan, matarplan og innkaupalisti sem er reiknað fyrir þig og raðast í kringum vinnuna og lífið. Brot af því sem einkaþjálfun kostar.
7 dagar frítt · Segðu upp hvenær sem er · Á íslensku, ensku og pólsku


Persónulegt æfinga- og matarplan þarf ekki að kosta tugi þúsunda á mánuði.
Með ársáskrift. Mánaðaráskrift um 2.500 kr. Fyrsta vikan er frí.
Skráðu vaktirnar eða vinnutímann einu sinni. KjarnaFit setur æfingarnar á frídagana og frítímann og aldrei í svefninn eftir næturvakt.

Hitaeiningar og prótein eftir þínu markmiði, kyni og þyngd. Veldu fjölbreytt plan með meal prep, eða einfalt: hakk og grjón, kjúlli og kartöflur, egg í morgunmat.

Allt sem þarf í réttina vikunnar, lagt saman og raðað eftir deildum í búðinni. Hakaðu við á meðan þú verslar.

KjarnaFit heldur utan um það sem skiptir máli svo þú þurfir ekki fimm öpp.
Prógramm eftir markmiði, með myndum og leiðbeiningum við hverja æfingu og hvíldartíma.
Kepptu við vini og vinnufélaga á stigatöflu. Stig fyrir æfingar, mat og vigtun.
Skref, hitaeiningar og æfingar úr úrinu eða símanum, ef þú vilt.
Þyngd, stöðumyndir og ný met vika fyrir viku. Deildu æfingunni á Instagram.
Einkaþjálfarar setja upp prógramm og matseðil fyrir sína kúnna og fylgjast með.
Íslenska, enska og pólska. Skiptu um tungumál hvenær sem er.
Engin greiðsla fyrstu vikuna. Segðu upp hvenær sem er í App Store eða Google Play.
App Store rukkar í dollurum og Google Play í evrum, svo upphæðin í krónum sveiflast aðeins með genginu.
Já. Þú velur einfaldlega hvaða daga og klukkan hvað þú vilt æfa, og appið raðar öllu þar.
Í stillingum Apple ID á iPhone eða undir Áskriftir í Google Play. Ef þú segir upp í prufunni er ekkert rukkað.
Já, KjarnaFit er í prófun á Google Play og kemur út þar fljótlega. Á iPhone er það í App Store.
Þú velur hvað þú borðar og hverju þú vilt sleppa (t.d. hnetum, glúteni, skelfiski, soja, sesam eða sinnepi) og matarplanið velur aðra rétti í staðinn. Lestu alltaf á umbúðirnar.
Appið býr til planið fyrir þig. Ef þú ert hjá einkaþjálfara getur hann tengst þér með kóða og sett upp prógramm fyrir þig.
Nei. Hitaeiningar og matarplön eru almenn viðmið. Ráðfærðu þig við lækni ef þú ert með sjúkdóm eða ert barnshafandi.
Sendu póst á info@kjarnafit.is.