Persónuverndarstefna

Uppfært 29. október 2026

Hér kemur fram hvaða upplýsingum KjarnaFit safnar, til hvers þær eru notaðar, hver sér þær og hvaða réttindi þú hefur. Við söfnum aðeins því sem þarf til að appið virki og seljum aldrei upplýsingar um þig.

Hver ber ábyrgð

Ábyrgðaraðili vinnslunnar er Davíð Freyr Karlsson („við“).

Spurningar og beiðnir um persónuvernd sendast á info@kjarnafit.is.

Upplýsingar sem við vinnum með

Til hvers upplýsingarnar eru notaðar

Heimild til vinnslunnar

Aðgangur og grunnvirkni byggja á samningi við þig, þ.e. skilmálunum (b-liður 1. mgr. 6. gr. persónuverndarreglugerðarinnar).

Heilsutengdar upplýsingar, svo sem þyngd, mataræði, check-in og myndir, eru viðkvæmar persónuupplýsingar. Þær vinnum við á grundvelli skýrs samþykkis þíns sem þú gefur við nýskráningu (a-liður 2. mgr. 9. gr.). Þú getur dregið samþykkið til baka hvenær sem er með því að hætta að skrá slíkar upplýsingar, eyða þeim eða eyða aðganginum.

Þátttaka í stigatöflu og hópum byggir á samþykki sem þú gefur og dregur til baka sjálf/ur.

Hver sér upplýsingarnar

Við seljum aldrei upplýsingar og notum þær ekki í auglýsingar.

Hve lengi upplýsingar eru geymdar

Upplýsingarnar eru geymdar á meðan aðgangurinn þinn er virkur. Þegar þú eyðir aðganginum er öllum gögnum og myndum eytt strax. Afrit sem hýsingaraðilinn tekur eyðast sjálfkrafa innan 30 daga.

Öryggi

Öll samskipti eru dulkóðuð (HTTPS). Aðgangsstýring í gagnagrunninum sér til þess að hver og einn sér aðeins sín gögn og þjálfari aðeins gögn sinna kúnna. Myndir eru í lokaðri geymslu og birtast aðeins í gegnum tímabundna hlekki.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingunum þínum, fá þær leiðréttar, fá þeim eytt, fá þær afhentar á tölvutæku formi og að andmæla vinnslu. Þú getur eytt aðganginum sjálf/ur í appinu undir Ég → Eyða aðgangi.

Aðrar beiðnir sendirðu á info@kjarnafit.is og við svörum innan mánaðar.

Ef þú telur að ekki sé rétt farið með upplýsingarnar þínar geturðu kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).

Aldur

Appið er ætlað 16 ára og eldri. Við biðjum ekki um upplýsingar frá yngri börnum. Ef við komumst að því að yngri en 16 ára hafi búið til aðgang eyðum við honum.

Breytingar

Ef við breytum stefnunni látum við vita í appinu áður en breytingarnar taka gildi.