Skilmálar
Þessir skilmálar gilda um notkun á KjarnaFit. Með því að búa til aðgang samþykkir þú þá.
Um þjónustuna
KjarnaFit er app fyrir æfingar, matseðla, dagatal og samskipti við einkaþjálfara. Þjónustan er rekin af Davíð Freyr Karlsson („við“).
Aðgangurinn þinn
Þú þarft að vera 16 ára eða eldri og gefa upp rétt nafn og netfang. Þú berð ábyrgð á að halda lykilorðinu leyndu og á því sem gert er í aðganginum þínum.
Ekki læknisráðgjöf
Æfingar, matseðlar og næringargildi í appinu eru almennar upplýsingar og koma ekki í stað ráðgjafar læknis, sjúkraþjálfara eða næringarfræðings.
Næringargildi eru áætluð út frá dæmigerðum gildum og geta verið frábrugðin vörunni sem þú kaupir. Upplýsingar á umbúðum gilda alltaf framar.
Ef þú ert með sjúkdóm, meiðsli eða ert barnshafandi skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú byrjar. Þú æfir á eigin ábyrgð.
Þjálfarar
Þjálfari ber ábyrgð á þeirri þjálfun og ráðgjöf sem hann veitir kúnnum sínum, þar á meðal prógrömmum, máltíðum og svörum við check-in.
Þjálfari má aðeins nota upplýsingar um kúnna sína til að þjálfa þá, skal gæta trúnaðar um þær og má ekki afrita þær út fyrir appið nema með samþykki kúnnans.
Til að stofna þjálfaraaðgang þarf boðskóða frá okkur. Þjálfarar greiða mánaðarlega áskrift samkvæmt gildandi verðskrá, sem er kynnt fyrirfram. Verð eru með VSK. Fjöldi kúnna fer eftir áskriftarleið.
Áskrift er greidd fyrirfram. Ef greiðsla hefur ekki borist 7 dögum eftir lok tímabils getur þjálfarinn ekki tekið við nýjum kúnnum, svarað check-in eða breytt prógrömmum og áskorunum fyrr en greitt hefur verið. Kúnnar þjálfarans halda alltaf aðgangi að appinu og gögnunum sínum. Áskrift má segja upp hvenær sem er og gildir þá út greitt tímabil.
Notendur
Notendur sem æfa hjá þjálfara greiða ekkert fyrir appið. Með því að skrá þig hjá þjálfara með kóða veitir þú honum aðgang að gögnunum þínum eins og lýst er í persónuverndarstefnunni. Þú getur hætt hjá þjálfara hvenær sem er.
Aðrir notendur greiða áskrift, mánaðarlega eða árlega, sem er keypt í App Store eða Google Play. Ný áskrift byrjar á 7 daga ókeypis prufutíma. Ef ekki er sagt upp fyrir lok prufutímans er áskriftarverðið rukkað af reikningnum hjá Apple eða Google og áskriftin endurnýjast sjálfkrafa í lok hvers tímabils nema slökkt sé á endurnýjun a.m.k. sólarhring áður. Áskrift er sagt upp og henni stjórnað í stillingum Apple ID eða Google Play. Endurgreiðslur fara eftir reglum Apple og Google.
Það sem er óheimilt
- Að reyna að komast í gögn annarra eða trufla þjónustuna.
- Að setja inn efni sem er ólöglegt, meiðandi eða brýtur gegn réttindum annarra.
- Að nota appið til að senda ruslpóst eða auglýsingar.
Við líðum ekki móðgandi eða óviðeigandi nöfn eða efni. Á stigatöflum getur þú tilkynnt nafn eða lokað á notanda með ⋯ hnappinum. Við förum yfir tilkynningar innan sólarhrings, fjarlægjum efnið og getum lokað aðgangi þeirra sem brjóta gegn þessu.
Efnið þitt
Þú átt það efni sem þú setur inn, t.d. myndir, máltíðir og prógrömm. Þú veitir okkur leyfi til að geyma það og birta þeim sem þú deilir því með, eingöngu til að veita þjónustuna.
Myndir af æfingum í appinu koma úr Free Exercise DB og eru í almannaeigu.
Ábyrgð
Við leggjum okkur fram um að appið sé alltaf aðgengilegt og að gögnin þín séu örugg, en getum ekki ábyrgst að þjónustan verði aldrei fyrir truflunum. Ábyrgð okkar takmarkast við það sem lög heimila.
Lokun aðgangs
Þú getur eytt aðganginum hvenær sem er undir Ég → Eyða aðgangi. Við getum lokað aðgangi sem brýtur gegn þessum skilmálum.
Breytingar á skilmálum
Ef við breytum skilmálunum látum við vita í appinu áður en breytingarnar taka gildi.
Lög og varnarþing
Um skilmálana gilda íslensk lög. Ágreiningsmál skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Hafðu samband: info@kjarnafit.is.